X-ið 977 er rokkstöð Sýnar sem fór fyrst í loftið í nóvember 1993 og sendir út á FM 97,7. Tónlistin er í fyrirrúmi, rokk í ýmsum myndum, en meðal elstu þátta stöðvarinnar er Funkþátturinn sem fjallar um raftónlist og hefur fylgt henni frá fyrstu viku. Stöðin næst í Reykjavík, á Akureyri, á Suðurlandi og á Ísafirði.