Saga Rásar 1 er saga íslensks útvarps sjálfs, því útsendingar Ríkisútvarpsins hófust 20. desember 1930 á þessari rás. Hún einbeitir sér að fréttum, menningarmálum og ítarlegri dagskrárgerð, þar sem gerðar eru meiri kröfur um unnið efni en á systurrásinni. Hlustendur í Reykjavík stilla á FM 92,4 eða 93,5 og rásin þjónar landinu öllu.